Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Topp 10: tölvuleikir

Ætla að koma með nýjan dálk sem mun bera heitið topp 10, sem gæti breyst í topp 5 eða topp 15 eða topp milljón!  Fer allt eftir viðfangsefninu hverju sinni. Í þetta skiptið ætla ég að taka fyrir uppáhalds tölvuleikina mína.

10.  Wario Land 3 (2000) (Game Boy Color)

Þrátt fyrir að vera Playstation-maður þá má Nintendo eiga það að þeira kunna að gera góða platformleiki! Þennan leik fengum við bræðurnir árið 2002 og ég var ennþá að spila hann þegar ég var busi í framhaldsskóla (með góðum hléum þó). Náði samt aldrei að klára hann og hann er týndur núna. FML.

 

9.  Buzz!: The Music Quiz (2005) (PlayStation 2)

Spurningaleikur um tónlist, þarf ekki að segja meira. Buzz-leikirnir sem fylgdu á eftir ná ekki sömu gæðum og þessi að mínu mati, þó Hollywood Quiz hafi verið góður að vísu.  Á mjög góðar minningar frá því í 10. bekk/fyrsta ár í FSu tengdar þessum leik.

 

8.  Medal of Honor: Frontline (2002) (PlayStation 2)

Einfaldur 1. persónu skotleikur, tilvalinn fyrir þá sem sökka í slíkum leikjum, en ég er einmitt einn af þeim. Útlitið og tónlistin vega líka stórt enda mikil áhersla lögð á þessi atriði í herbúðum Electronic Arts. Heimsstyrjaldarfílingurinn er stór plús í þessum leik.

 

7.  FIFA 99 (1998) (PlayStation)

Einn af mínum fyrstu tölvuleikjum. Kynnti mig fyrir þeirri snilld sem FIFA leikirnir eru. FM hvað?

 

 

6.  Medal of Honor: Rising sun (2003) (PlayStation 2)

Útlitslega einn flottasti leikur sem ég hef spilað. Spilunin mjög þæginleg líka.

 

 

5.  Warcraft 2 (1995) (PC)

Er lítið fyrir herkænskuleiki og meira og minna alla PC-leiki en þessi leikur er bara of góður. Einfaldur, langur (ég lít á það sem kost), skemmtilegur og flottur leikur þrátt fyrir að vera barns síns tíma, enda er þetta ein vinsælasta herkænskuserían í leikjaheiminum. Varð fyrir virkilegum vonbrigðum þegar ég prófaði Warcraft 3 eftir að hafa spilað þennan.

 

4.  FIFA Football 05 (2004) (PlayStation 2)

Fyrsti almennilegi FIFA-leikurinn frá því FIFA 99 kom út (að vísu var FIFA 2003 lala). Í þessum leik var í fyrsta skiptið komið almennilegt manager mode og spilunin var orðin ásættanleg.

 

3.  Grand Theft Auto: San Andreas (2004) (PlayStation 2)

Besta spilun í GTA-leik að mínu mati. Söguþráðurinn, útlitið, TÓNLISTIN!. Allt fullkomið. Besta þó finnst mér hvað hann er langur og passlega léttur/erfiður.

 

2.  Crash Bandicoot 2: Cortex strikes back (1997) (PlayStation)

Fyrsti Playstation leikur okkar bræðra, en þessi leikur var keyptur ásamt Playstation-tölvunni okkar í Fríhöfninni árið 1998. Besti platform-leikur sem ég hef prófað (já, ég hef prófað Super-Mario leikina). Þessi leikur hefur allt. Útlitið, gallalausa spilun, snilldar tónlist sem minnir mjög mikið á Depeche Mode, fínan söguþráð o.m.fl.  Það sem er þó best við þennan leik er það hversu langur hann er og hvað það er mikið af leynum og leyniborðum, þannig að það er endalaust hægt að finna eitthvað nýtt í honum. Ekki skemmir fyrir að þegar maður fer í pause menu þá getur maður séð í prósentum hversu langt maður er kominn með leikinn (mjög þæginlegt að hafa það á hreinu). Það var líka langskemmtilegast að spila hann þegar maður var orðinn eldri og átti sjéns á að vinna leikinn. Ég vil meina að þessi leikur sé bæði barna og fullorðinsleikur,það fer eftir því hversu langt þú kemst í leiknum. Þetta er svona eins og að skilja brandarana í Simpsons eða hafa gaman af þeim vegna þess að þetta er teiknimynd. Ef þið skiljið hvað ég meina...

1.  Grand Theft Auto: Vice City (2002) 

Já ég veit, ég er 80's hóra (leikurinn gerist árið 1986).  Það sem heillar mig mest við þennan leik er hversu vel framleiðendunum tekst upp með að endurskapa andrúmsloftið á 9. áratugnum. Útlitið er ótrúlega vel gert (bylting að mínu mati, enda var Playstation 2 ný tölva á þessum tíma og grafíkin í leikjunum eftir því), tónlistarvalið gæti ekki verið betra, söguþráðurinn er á lengd við gott kvikmyndahandrit og spilunin er guðdómleg (mikil framför frá GTA 3 þó svo að sá leikur hafi verið mjög góður). Sem sagt, GTA: Vice City er langbesti leikur sem ég spilað, og spilar þar aðallega inn í hversu góður heildarsvipurinn á leiknum er. T.a.m. er spilunin skemmtilegri í GTA: San Andreas, og verkefnin aðeins skemmtilegri í GTA: Vice City Stories en þegar öll atriðin eru tekin saman þá hefur Vice City vinningin.  


Höfundur

Stefán Hannesson
Stefán Hannesson
Tónlistar,fótbolta- og kvikmyndablogg með meiru...
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband